Um okkurMannauður skapar verðmæti

framurskarandi_2018

SamvinnaVið erum sterkt teymi

Hjá okkur er valinn maður í hverju rúmi. Hjá ÓJ&K-ÍSAM vinna um 130 manns. Liðsheildin er öflug og samhent og tekur vel á móti nýjum liðsmönnum. Stjórn starfsmannafélagsins Hugins er síkvik og hugmyndarík og efnir reglulega til skemmtilegra uppákoma og atburða til að þétta hópinn og skemmta sér.

lager-net_13-1_vert
 

Í söludeild ÓJ&K-ÍSAM starfa 55 sölumenn. Hluti þeirra sér til þess að vörur sem ÓJ&K-ÍSAM flytur inn og dreifir fáist í flestum dagvöruverslunum landsins.

Tveir sölumenn eru staðsettir á Akureyri og sinna sveitarfélögum norðan heiða. Aðrir sölumenn sinna stóreldhúsum landsins, þeir eru allir menntaðir í sínu fagi, ýmist matreiðslumenn eða bakarar.

Um 30 manns sinna skrifstofustörfum sem styðja við meginrekstur fyrirtækisins, þ.e. innheimtu, bókhaldi, tollafgreiðslu, símsvörun í þjónustuveri og tölvuþjónustu.

Vöruhús & dreifing Vöruhús

Í vöruhúsi ÓJ&K-ÍSAM á Korputorgi eru u.þ.b. 8.500 brettapláss fyrir þurrvöru, 2.500 í frysti og 350 í kæli. Starfsmenn vöruhúss eru 53 talsins. Lagerstjóri er Ólafur Sigurðsson.

Vöruhús & dreifing Dreifing

ÓJ&K-ÍSAM er með öflugt dreifikerfi fyrir vöruflutninga. Sjö bílar fyrirtækisins eru notaðir í dreifingu á höfuðborgarsvæðinu og um nágrannabyggðir á Suðurlandi og Suðvesturhorninu. Verktakar sjá um vöruflutninga á önnur svæði landsins.

Söludeild

Opnunartími
Mán.–fös.: 08:00–16:00
Pöntunarsími
535 4000
Netfang
pantanir@ojk-isam.is

Vöruhús

Opnunartími
Mán.–fim.: 08:00–17:00
Föstudag: 08:00–16:00
Pöntunarsími
535 4000
Netfang
voruhus@ojk-isam.is