SkilmálarHér að neðan má finna skilmála ÓJ&K-ÍSAM ehf.

Dreifing – höfuðborgarsvæðið
Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 12:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag. Allar pantanir sem eru yfir 25.000 kr. án vsk. eru sendar án sendingarkostnaðar.

Útkeyrsla á landsbyggðinni
Samskip og Flytjandi sjá um allar sendingar á landsbyggðinni fyrir ÓJ&K-ÍSAM. Allar pantanir sem eru yfir 25.000 kr. án vsk. eru sendar kaupanda að kostnaðarlausu. Ef pöntun nær ekki tilsettu lágmarki greiðir kaupandi fyrir flutning.
Allar pantanir þurfa að berast sólarhring fyrir brottför.

Vöruskil
Ef skila á vöru skal kaupandi koma athugasemdum til skila til starfsmanna ÓJ&K-ÍSAM innan sólarhrings frá móttöku vöru.
Gallaðar eða rangt afgreiddar vörur utan höfuðborgarsvæðisins skulu endursendar með Samskip eða Flytjanda. Kreditreikningur er gerður eftir að varan berst til okkar og hefur verið yfirfarin af móttöku.

Reikningsviðskipti
Sendur er reikningur fyrir vörum til þeirra viðskiptavina sem ekki hafa samið um staðgreiðslu eða greiðslur með greiðslukortum. Gjalddagar reikninga eru í samræmi við þá samninga sem eru í gildi milli ÓJ&K-ÍSAM og viðskiptavinar.
Dráttarvextir reiknast í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu og miðast við alla reikninga sem eru greiddir eftir eindaga.
Athugasemdir vegna reikninga þurfa að berast innan 10 daga frá útgáfudegi reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.
Einhverjar vörur eru seldar samkvæmt vigt. Allt kapp er lagt á að afgreiða sem næst þeirri þyngd sem pöntuð var. Reikningur miðast hinsvegar alltaf við afgreidda þyngd til viðskiptavinar.
245 kr. seðilgjald leggst á alla greiðsluseðla.

Öryggisskilmálar
ÓJ&K-ÍSAM tekur við öllum greiðslukortum. Þegar gengið er frá greiðslu fer færslan í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd. ÓJ&K-ÍSAM hefur ekki aðgang að kortaupplýsingum og safnar þeim ekki.

Opnunartímar
Söludeild:
Mán–fös 8:00–16:00

Vöruhús:
Mán–fim: 8:00–17:00
Föstudag: 8:00–16:00

Blikastaðavegi 2-8,
112 Reykjavík
Sími: 535 4000
pantanir@ojk-isam.is

Söludeild

Opnunartími
Mán.–fös.: 08:00–16:00
Pöntunarsími
535 4000
Netfang
pantanir@ojk-isam.is

Vöruhús

Opnunartími
Mán.–fim.: 08:00–17:00
Föstudag: 08:00–16:00
Pöntunarsími
535 4000
Netfang
voruhus@ojk-isam.is